Fara í innihald
Mynd: Mostphotos

9 Mat á grundvelli viðtals 

9.1 Sjón 

  • Hvenær varðstu var/vör við að þú ættir við sjónvandamál að stríða? 
  • Hefur sjónin þín breyst á síðustu tveimur árum? 
  • Notar þú einhverjar sjónrænar aðferðir til að styðja við heyrn og/eða snertiskyn? 
  • Hvernig hefur sjónskerðingin áhrif á daglegt líf þitt? 
Hvernig upplifir einstaklingurinn sjálfur (og, ef við á, aðstandendur sem rætt hefur verið við) hvernig sjónin nýtist? 
 
Er eitthvað sem einstaklingurinn sér við sumar aðstæður en ekki aðrar? (t.d. í myrkri, við glampa eða í sjónrænt flóknu umhverfi) 
 
Forsendur sem geta haft áhrif á sjónmatið? Dagsform, orkustig o.s.frv. 
 


9.2 Heyrn 

  • Hvenær varðstu var/vör við að þú ættir við heyrnarvandamál að stríða? 
  • Hefur heyrnin þín breyst á síðustu tveimur árum? 
  • Notar þú einhverjar heyrnrænar aðferðir til að styðja við sjón og/eða snertiskyn? 
  • Hvernig hefur heyrnarskerðingin áhrif á daglegt líf þitt? 
Hvernig upplifir einstaklingurinn sjálfur (og, ef við á, aðstandendur sem rætt hefur verið við) hvernig heyrnin nýtist? 
 
Meðvitund einstaklingsins um eigin raddbeitingu (vitneskja um hvenær hann talar of hátt eða of lágt o.s.frv.) 
 
Forsendur sem geta haft áhrif á heyrnarmatið? Dagsform, orkustig o.s.frv. 
 

9.3 Líkamlegt snertiskyn 

  • Hvernig notar þú líkamlegt snertiskyn í daglegu lífi? 
  • Hvaða aðferðir sem tengjast snertiskyni notar þú í daglegu lífi? 
  • Eru aðferðirnar sem tengjast snertiskyni stuðningur við sjón eða heyrn? Ef já, við hvaða aðstæður notar þú þær? 
  • Breytist notkun snertiskynsins við mismunandi aðstæður? (árstíð, dagsform, tími dags, birtuskilyrði o.s.frv.) 
  • Hefur notkun líkamlega snertiskynsins breyst á síðustu tveimur árum? 
Hvernig upplifir einstaklingurinn sjálfur (og ef við á, aðstandendur ef tekið hefur verið viðtal við þá) starfræna notkun líkamlega snertiskynsins? 
 
Að hve miklu leyti er einstaklingurinn meðvitaður um notkun eigin líkamlegs snertiskyns (byggt á reynslu)? 
 
Er einstaklingurinn með tæknileg hjálpartæki til stuðnings við snertiskynið? Ef já, hversu oft eru þau í notkun? 
□ Punktaletursskjár með tölvu, spjaldtölvu eða síma 
□ Táknmálstúlkur 
□ Annað 
Eru einhverjar sérstakar forsendur sem geta haft áhrif á mat á líkamlegu snertiskyni hjá þeim einstaklingi sem verið er að meta? Dagsform, orkustig o.s.frv. 
 

9.4 Samskipti og samspil 

9.4.1 Almennar spurningar um samskipti og samspil 

Hvaða samskiptamáta notar þú? 
□ Táknmál 
□ Talað mál 
□ Snertitengd samskiptaform 
□ Hver eru þau? 
Notar þú nokkur samskiptaform í bland? 
Ef já, lýstu:
Í samtali tveggja, hvaða samskiptaaðferð(ir) kýst þú? 
Getur þú fylgst með samtali tveggja án erfiðleika? 
Hvaða aðstæður þurfa að vera fyrir hendi til að þú getir átt samtal við einn einstakling? (kunnugur einstaklingur, kunnugleg mállýska, kunnuglegt umræðuefni, hljóð- og birtuskilyrði, staðsetning, aðlögun, hjálpartæki) 
Hvaða samskiptaaðferð eða samskiptaaðferðir kýst þú þegar þú átt samtal við fleiri en einn einstakling? 
Hvaða aðstæður þurfa að vera fyrir hendi til að þú getir átt samtal við fleiri en einn einstakling? (fjöldi þátttakenda, hljóð- og birtuskilyrði, staðsetning, aðlögun, hjálpartæki) 
Getur þú fylgst með samtali í 3–4 manna hópum án erfiðleika? 
Hvaða tegundir fjarskipta kýst þú? 
□ Tölvupóstur
□ SMS / textaskilaboð
□ Póstur 
□ Sími
□ Samfélagsmiðlar
□ Aðrir miðlar 
□ Annað :
Við hvaða aðstæður, til dæmis með hjálpartækjum eða aðlögun, getur þú notað þessar tegundir fjarskipta? 
Atriði sem viðmælandi þarf að hafa í huga í samskiptum: 
□ Skipti á milli þess að tala og hlusta   
□ Viðbrögð 
□ Skipt um umræðuefni 
□ Athygli 
□ Annað:
Upplifir þú áskoranir í samskiptum við annað fólk vegna skynskerðingar þinnar? 

9.4.2 Sjón 

Hvernig hefur sjónin áhrif á samskiptahæfni þína? 
 
Getur þú notað sjónina við eftirfarandi samskiptaaðstæður? 
Við lestur á táknmáli? 
Ef já, í hvaða fjarlægð virkar þetta best? 
Við varalestur? 
Ef já, í hvaða fjarlægð virkar þetta best? 
Við lestur á svipbrigðum? 
Ef já, í hvaða fjarlægð virkar þetta best? 
Til að greina á milli andlita til að bera kennsl á þann sem talar? 
Ef þú sérð ekki andlit þess sem talar, getur þú samt skilið hvað er sagt? 
Til að eiga samskipti við nokkra einstaklinga samtímis? 
 
Við notkun myndsímtala?
 
Skynjar þú þegar breytingar verða á samtali eða ef umræðuefnið breytist? 
 
Notar þú sjónina til að skynja hvenær á að taka til máls í samtölum? 

 
Getur þú auðveldlega fært athyglina á milli nokkurra einstaklinga, eða á milli einstaklings og hlutar í samtali? 
Getur þú átt samskipti og lesið líkamstjáningu og svipbrigði í venjulega upplýstu herbergi? 
Getur þú haldið augnsambandi við annað fólk? 

9.4.3 Heyrn 

Hvernig hefur heyrnin áhrif á samskiptahæfni þína? 
 
Getur þú notað heyrnina við eftirfarandi samskiptaaðstæður? 
Skynjar þú talað mál? 
Ef svo er, hvað virkar best: hár eða lágur raddtónn? 
Í hvaða fjarlægð heyrir þú best? 
 
Getur þú greint á milli og skilið mállýskur? 
 
Skynjar þú hvenær það er komið að þér að tala í samtali (skiptast á að tala og hlusta)? 
 
Tekur þú eftir blæbrigðum í rödd, svo sem kaldhæðni, kímni, skapsveiflum o.s.frv.? 
 
Getur þú tekið þátt í samskiptum við nokkra aðila á sama tíma? 
 
Getur þú átt samskipti í síma? 
 
Getur þú hermt eftir hljóðum sem þú heyrir? 
Þegar þú heyrir eitthvað, leitar þú staðfestingu á því? 
 
Skynjar þú þegar einhver ávarpar þig með nafni? 
 
Getur þú haldið sömu einbeitingu yfir lengri tíma í samtölum þar sem hljóð kemur við sögu? 
 
Getur þú með heyrninni stjórnað röddinni þannig að hún sé aðlöguð aðstæðum? 

9.4.4 Líkamlegt snertiskyn 

Hvernig hefur líkamlegt snertiskyn áhrif á getu þína til að eiga samskipti? 
 
Notar þú snertiskynið í eftirfarandi samskiptum? 
Til að lesa táknmál? 
Ef já, sem aðalsamskiptaleið? 
Notkun á samskiptum með snertiskyni? 

Sem stuðningur við sjón og/eða heyrn? 

Getur þú skynjað þegar umræðuefni breytist í samskiptum með snertingu? 

Skynjar þú blæbrigði eins og húmor, kaldhæðni o.s.frv.? 
 
Tekur þú þátt í hópsamtölum? (færir þig á milli nokkurra viðmælenda í sama samtali) 
 
Notar þú snertiskynið til að ná til og hafa samband við aðra? 
 
Getur þú skynjað frumkvæði annarra með snertiskyninu? 
 
Notar þú snertiskynið markvisst í samtölum, bæði þegar þú hlustar og þegar þú talar? 

9.5 Upplýsingaöflun 

9.5.1 Almennar spurningar um upplýsingaöflun 

Hvaða upplýsingaleiðir kýst þú að nota? 
□ Útvarp
□ Dagblöð 
□ Sjónvarp
□ Hljóðútgáfu dagblaðs 
□ Netmiðla
□ Dagblað á blindraletri 
□ Annað: 
Hvaða hjálpartæki eða aðlaganir þarft þú til að nota þessar upplýsingaleiðir? 
Hvaða hjálpartæki eða þjónustu notarðu til að auka öryggi og fá viðvaranir? 
□ Eru þau heyrnartengd? 
□ Sjóntengd? 
□ Snertitengd? 
□ Blanda af þessu? 
Hvernig aflar þú þér upplýsinga um samfélagið, nærsamfélagið, lýsingar á umhverfinu o.s.frv.? 
□ Táknmálstúlkur / fylgdarmaður 
□ Persónulegur aðstoðarmaður 
□ Stuðningsfulltrúi / liðveisla 
□ Lestrar- og ritaraaðstoð 
□ Annað, lýstu: 

9.5.2 Sjón 

Hvernig hefur sjónin áhrif á getu þína til að afla upplýsinga úr umhverfinu? 
Getur þú notað sjónina til að gera eftirfarandi? 
□ Horfa á sjónvarp? 
□ Lesa? 
□ Að finna upplýsingar á netinu? 
□ Skynjar þú upplýsingar í umhverfinu, svo sem til að rata / átta þig á kunnuglegu og ókunnuglegu umhverfi? 
Þegar þú situr kyrr, bregst þú við sjónrænu áreiti í umhverfi þínu? 
Horfir þú á mismunandi hluti/muni þegar þeir eru settir fyrir framan þig? 
Getur þú þekkt fólk eða hluti þegar þeir eru kyrrir (hreyfast ekki)? 
Notar þú sjónina til að fá yfirsýn með því að fylgjast með hreyfingum í umhverfi þínu? 
Þekkir þú andlit eingöngu með sjóninni? 

Getur þú lesið upplýsingar sem eru settar fram á myndum (tvívídd)? 
Þekkir þú sjónræn smáatriði innan heildar? 
Geturðu, út frá sjónrænum smáatriðum, sett þau saman í eina heild? 
Hvað skynjar þú best – daufa eða sterka liti? 

9.5.3 Heyrn 

Hvernig hefur heyrnin áhrif á getu þína til að afla upplýsinga úr umhverfinu? 
Getur þú notað heyrnina til eftirfarandi athafna? 
□ Að hlusta á útvarp? 
□ Að hlusta á tónlist? 
□ Að sækja fyrirlestur/námskeið? 
Heyrir þú í dyrabjöllunni og símanum? 
Bregst þú við hljóðum í umhverfinu? 
Skynjar þú hljóð sem koma úr fjarlægð? 
Getur þú borið kennsl á fólk nálægt þér eingöngu með heyrninni? 
Þegar þú heyrir hljóð, getur þú greint hvaða hljóð það er og hvort þú hefur heyrt það áður? 
Þegar einhver talar, getur þú fylgst með því sem sagt er og þeim sem talar? 

9.5.4 Líkamlegt snertiskyn 

Hvernig hefur líkamlegt snertiskyn áhrif á getu þína til að afla upplýsinga úr umhverfinu? 
 
Getur þú notað snertiskynið við eftirfarandi athafnir? 
□ Við lestur á rituðu efni? 
□ Við öflun upplýsinga með snertanlegum dagsáætlunum/dagatölum o.s.frv.? 
□ Til að fá yfirsýn yfir nánasta umhverfi? 
Notar þú snertiskynið markvisst til að beina athygli að hlutum og fólki í umhverfi þínu? 
Notar þú snertiskynið markvisst til að skoða hluti? 
 
Notar þú snertiskynið markvisst til að greina líkindi og mun á hlutum? 
Notar þú snertiskynið markvisst til að skilja staðbundin tengsl milli hluta og staða? 
 
Notar þú snertiskynið markvisst til að átta þig á öðru fólki? 
 
Notar þú snertiskynið markvisst til að skynja líkamstjáningu og viðbrögð annarra? 
 
Notar þú snertiskynið markvisst til að verða var/vör við snertingu annarra við eigin líkama? 

9.6 Áttun og sjálfstæð hreyfigeta 

9.6.1 Almennar spurningar varðandi hreyfigetu 

Á hvaða skilningarvit treystir þú fyrst og fremst til áttunar og hreyfingar? 
□ Sjón 
□ Heyrn 
□ Snertiskyn 
□ Blanda af nokkrum – lýstu: 
Hvers konar aðlögun þarft þú? 
□ Lýsing 
□ Kennileiti/viðmiðunarpunktar (sjónrænir, snertanlegir, heyrnrænir) 
Notar þú hvítan staf, leiðsöguhund eða fylgdarmann? 
Getur þú ratað innandyra á ókunnum stöðum? 
□ án fylgdarmanns
□ með fylgdarmanni 
Getur þú ratað utandyra á ókunnum stöðum? 
□ án fylgdarmanns
□ með fylgdarmanni 
Notar þú almenningssamgöngur og ef svo er, við hvaða aðstæður? 
 
Hvernig ferðast þú til og frá athöfnum innan og utan heimilis? 
 

9.6.2 Sjón  

Hvernig hefur sjónin áhrif á getu þína til að átta þig í umhverfinu? 
 
Hvernig notar þú sjónina þegar þú gengur á ókunnugu svæði? 
 
Hvernig notar þú sjónina þegar þú gengur á kunnuglegu svæði? 
 
Getur þú notað sjónina til að skynja hindranir í umhverfinu? 
 
Getur þú notað sjónina til að afla upplýsinga um yfirborðið framundan (slétt/óslétt)? 
 
Getur þú notað sjónina til að afla upplýsinga um hæðarmun í umhverfinu? 
Getur þú notað sjónina til að átta þig í: 
Kunnuglegu umhverfi (til dæmis heima)? 
 
Ókunnugu umhverfi?
Getur þú ratað í herbergi með því að nota sjónina? 
 
Virkar sjónin þín nógu vel til að þú getir hreyft þig frjálslega við breytileg birtuskilyrði? 
 
Geturðu áttað þig á umhverfi þínu án þess að verða fyrir óþægindum vegna birtu? 
 
Getur þú áttað þig á umhverfi þínu í myrkri með því að nota sjónina? 
 

9.6.3 Heyrn 

Hvernig hefur heyrnin áhrif á getu þína til að átta þig í umhverfinu? 
Notar þú heyrnina til að átta þig í umferðinni? 

Er önnur heyrnartækni sem þú notar til áttunar og hreyfingar? 
Notar þú heyrn og eigin rödd til að kanna umhverfið og rata um það (bergmálskönnun)? 
Getur þú áttað þig á umhverfinu með því að nota heyrnina? 

Getur þú áttað þig á hvaðan hljóð berst? 

Notar þú heyrnina til að átta þig á stefnu? 

Notar þú heyrnina til að finna út hvaðan fjarlæg hljóð berast? 

9.6.4 Líkamlegt snertiskyn 

Hvernig hefur líkamlegt snertiskyn áhrif á getu þína til að átta þig í umhverfinu? 
Getur þú greint yfirborð með snertingu á meðan þú hreyfir þig? 
Hvernig upplifir þú jafnvægisgetu þína við hreyfingu eða áttun? 
Þarftu hjálpartæki til að hreyfa þig, svo sem hvítan staf, leiðsöguhund eða fylgdarmann? 
Notar þú snertimerkingar í kunnuglegu umhverfi á meðan þú hreyfir þig? 
Hvernig færð þú yfirsýn yfir nýtt umhverfi? 
Notar þú snertiskynið markvisst til að finna kennileiti í umhverfinu? 
Notar þú snertiskynið markvisst til að rata í umhverfinu? 
Notar þú snertiskynið markvisst til að bera kennsl á mismunandi herbergi og umhverfi? 

9.7 Heilsa 

Hvernig metur þú eigin heilsu með tilliti til áhrifa samsettu skynskerðingarinnar á hana? Ertu með einhver af eftirfarandi vandamálum sem nefnd eru á listanum og getur þú tengt þau við samsettu skynskerðinguna? 
  • Höfuðverkur 
  • Vöðvaspenna og verkir 
  • Kvíði og óöryggi 
  • Sundl / jafnvægisvandamál / óstöðugleiki 
  • Aðrir heilsutengdir þættir sem skipta máli 
  • Orkunotkun og styrkur 
Hvernig hefur þreyta áhrif á sjónina? Hvernig nærð þú að jafna þig svo sjónin virki aftur? 
Hvernig hefur þreyta áhrif á heyrnina? Hvernig nærð þú að jafna þig svo heyrnin virki aftur? 
Hvernig hefur þreyta áhrif á snertiskynið? Hvernig nærð þú að jafna þig svo snertiskynið virki aftur? 
Hvernig finnst þér skynfærin (sjón, heyrn og líkamlegt snertiskyn) virka saman þegar þú verður þreytt/ur? 

9.8 Eigin upplifun einstaklingsins 

  • Einstaklingar með samsetta skynskerðingu segjast heyra en ekki skynja hvað er sagt. Þeir sjá en geta ekki treyst því sem þeir sjá að fullu. Því getur orðið erfitt að skilja hvað er að gerast í umhverfinu og maður getur upplifað sig einangraðan frá samfélaginu. Að hve miklu leyti þekkir þú þig í þeirri lýsingu? 






Fólk með samsetta skynskerðingu og daufblindu segir oft frá því að það missi þráðinn í samtölum. Það segir einnig frá því að fólk birtist skyndilega og það missi auðveldlega yfirsýn þegar margir eru viðstaddir. Að hve miklu leyti þekkir þú þig í þeirri lýsingu? 






Daufblinda einkennist af því að sjón og heyrn geta aðeins með erfiðleikum bætt hvort annað upp. Margir upplifa að þeir heyri eða sjái verr þegar sjón og heyrn geta ekki bætt upp fyrir hitt skynfærið. Að hve miklu leyti þekkir þú þig í þeirri lýsingu? 






  • Fólk með samsetta skynskerðingu og daufblindu segir oft frá því að það geti verið erfitt að eiga samskipti, afla upplýsinga og átta sig í aðstæðum með miklum umhverfishávaða. Að hve miklu leyti þekkir þú þig í þeirri lýsingu? 






Check Afritað á klippiborð