Fara í innihald
Mynd: Mostphotos

7 Notkun viðtals sem aðferð 

Viðtal er notað þegar einstaklingurinn, sem er í mati, getur sjálfur tjáð sig um hvernig sjón, heyrn og líkamlegt snertiskyn eru notuð í daglegu lífi. Viðtalið er grundvöllur að mati á starfrænni skynjunarnotkun í samskiptum, upplýsingaöflun og áttun og sjálfstæðri hreyfigetu 
Áður en viðtalið er tekið verður öflun viðeigandi læknisfræðilegra og persónulegra upplýsinga að hafa farið fram. Ef læknisfræðilegar upplýsingar einar og sér nægja til að staðfesta daufblindu er starfrænt mat oft óþarft. Viðtal er notað þegar slíkt gefur ekki ótvíræð svör. 
Viðtalsleiðarvísirinn er faglegt stuðningstæki sem má nota án takmarkana. Matsaðilinn velur viðeigandi spurningar, aðlagar röð þeirra og setur spurningarnar fram á þann hátt að auðvelt sé fyrir einstaklinginn sem er í mati að skilja þær. Viðtalið ætti að fara fram í rólegu umhverfi, þar sem nægur tími er til staðar, með hléum og nægu rými til íhugunar. 
Check Afritað á klippiborð