Að lokum er viðtalið dregið saman í eigindlegu mati á skynstarfsemi, sem er uppbyggt samkvæmt þeim sviðum sem skilgreind eru í norrænu skilgreiningunni. Matið á að lýsa því hvernig skynfærin eru notuð, hvernig þau geta bætt hvort annað upp og hvaða þýðingu það hefur fyrir athafnir og þátttöku.
10.1 Eigindleg lýsing
Lýstu afleiðingum samsettrar skynskerðingar, mismuninum eftir umhverfi og aðstæðum og áhrifum hennar á orkunotkun og félagslega þátttöku.
10.2 Mat matsaðila
Á grundvelli viðtalsins er tekin afstaða til þess hvort einstaklingurinn teljist vera með daufblindu og hvort þörf sé á frekara mati, ráðgjöf eða íhlutun.