Fara í innihald

5. Réttur barna til að taka þátt í neyðarástandi

Hvað geta Norðurlöndin lært af heimsfaraldrinum?

Norðurlöndin brugðust ekki öll eins við heimsfaraldrinum. Í öllum löndunum voru þó settar reglur og teknar ákvarðanir sem breyttu daglegu lífi barna.
Skólum var nokkrum sinnum lokað í vikur eða mánuði og þá var fjarkennsla. Börn gátu ekki tekið þátt í frístundastarfi eins og áður. Þau höfðu færri tækifæri til að hitta aðra og eyddu miklum tíma heima með fjölskyldum sínum.
Mörg börn sögðust hafa lært minna, verið einmana og liðið illa. Þau höfðu áhyggjur af heilsu fjölskyldunnar og af því hvort hún ætti nóg af peningum. Þau söknuðu líka ömmu og afa.
Börn fylgdu reglunum til að hjálpa til við að stöðva útbreiðslu veirunnar en það gerðu ekki allir fullorðnir. Þetta varð til þess að sum börn treystu fullorðnum síður.

Sumum börnum leið þó betur þegar þau voru ekki í skólanum. Þau urðu þá síður fyrir einelti og fannst þau ekki útundan.
Sum börn, sérstaklega þau yngri, höfðu gaman af því að vera meira heima með foreldrum sínum. Eldri börn söknuðu frekar einkalífs og tíma út af fyrir sig. Eftir því sem heimsfaraldurinn dróst á langinn varð staðan erfiðari.
Börn sem áttu erfitt heima hittu ekki kennara eða aðra fullorðna sem hefðu getað tekið eftir vandanum og hjálpað þeim að fá aðstoð.
​
Fjarkennsla var betri en engin kennsla. Tölvur og önnur stafræn tæki voru notuð meira í náminu. Sumar fjölskyldur höfðu hins vegar ekki gott netsamband, tölvu eða spjaldtölvu. Börn í fjölskyldum með litlar tekjur áttu því erfiðara með að fylgja náminu.
Almennt hafði heimsfaraldurinn meiri áhrif á börn sem áttu þegar í erfiðleikum.
Þrátt fyrir þetta var sjaldan hlustað á skoðanir barna eða hugsað um það sem væri þeim fyrir bestu þegar ákvarðanir voru teknar. Hvorki skólar, sveitarfélög né stjórnvöld hlustuðu nægilega á börn. Mörg börn fengu heldur ekki upplýsingar um stöðuna á skýru máli sem þau skildu.

Réttindi barna og það sem þeim er fyrir bestu

Í upphafi heimsfaraldursins var enginn sérstakur fulltrúi barna meðal þeirra sem tóku ákvarðanir.
Þegar skólum var lokað og frístundastarf takmarkað var ekki hugsað nógu vel um hvað væri börnum fyrir bestu. Börn sem voru einmana eða leið illa gátu ekki rætt við skólahjúkrunarfræðing eða sálfræðing. Þau hittu heldur ekki aðra fullorðna sem hefðu getað hjálpað þeim ef þeim leið illa heima.
Umboðsmenn barna á Norðurlöndunum vöktu athygli stjórnvalda á stöðu barna. Smám saman fengu réttindi barna meiri athygli.

Börn eiga að fá að taka þátt

Ekki allir fullorðnir á Norðurlöndunum gera sér grein fyrir því hversu mikilvægt er að börn fái að taka þátt þegar ákvarðanir eru teknar. Börn og ungmenni hafa fá tækifæri til að taka þátt í lýðræðinu og hafa áhrif á ákvarðanir.
Sjaldan var hlustað á skoðanir barna á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Það voru engar skýrar reglur um hvenær og hvernig ætti að spyrja börn hvað þeim fyndist. Börn voru til dæmis ekki spurð áður en skólum var lokað eða aðrar mikilvægar ákvarðanir teknar.
Ungmennaráð og nemendaráð voru ekki spurð álits, ekki einu sinni á netinu. Samtök sem vinna með börnum voru aðeins stundum spurð álits.
Í Finnlandi og á Álandseyjum var netið oftar notað en í hinum löndunum til að spyrja börn álits.
Áður en ákvarðanir voru teknar í skólum voru börn sjaldan spurð hvað þeim fyndist. Mörgum börnum fannst þau ekki fá að taka þátt og að skoðanir þeirra skiptu ekki máli.
Mörg börn vildu leggja sitt af mörkum. Á Íslandi tóku börn virkan þátt í að bregðast við heimsfaraldrinum. Í Svíþjóð vildu börn líka taka þátt og hjálpa til við að draga úr smitum. Ef fullorðnir hefðu séð þetta og leyft börnum að taka þátt hefðu börnin fundið að þau gætu haft áhrif. Þau hefðu líka fundið að þau væru hluti af sameiginlegu verkefni.

Sum börn áttu erfiðara en önnur

Sum börn fá ekki þá umönnun sem þau eiga rétt á. Sum verða fyrir ofbeldi heima hjá sér. Þegar þau þurftu að vera meira heima á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir jókst hættan á að illa væri komið fram við þau.
Á sama tíma hittu þau síður kennara og aðra fullorðna sem hefðu getað hjálpað þeim.
Þjónusta sem hjálpar börnum hefði átt að vera áfram í boði, en þeir sem tóku ákvarðanir hugsuðu ekki alltaf nógu vel um þetta.
Hinsegin börn og ungmenni, börn í fjölskyldum með litlar tekjur og börn með heilsuvanda fengu síður en önnur börn tækifæri til að taka þátt. Þau voru heldur ekki spurð hvernig mætti bæta stöðuna.

Upplýsingar til barna

Börn fengu oft ekki mikilvægar upplýsingar um heimsfaraldurinn eða þær ákvarðanir sem voru teknar. Stundum komu upplýsingarnar of seint eða voru of flóknar.
Þetta átti sérstaklega við um yngri börn og börn sem tilheyrðu minnihlutahópum.

Hvað þarf að gera eftir heimsfaraldurinn

Heimsfaraldurinn breytti lífi margra barna og ungmenna. Á þessum tíma lærðu þau minna í skólanum en venjulega og lífið var á margan hátt öðruvísi og erfiðara. Sum börn finna enn fyrir áhrifunum í dag.
Þeir sem taka mikilvægar ákvarðanir um málefni barna og ungmenna þurfa að muna eftir þessum áhrifum. Þau geta enn skipt máli, til dæmis þegar fjallað er um geðheilsu barna, börn sem hætta í skóla eða afbrot barna og ungmenna.
Við biðjum löndin um að gera eftirfarandi:
Gera það sem er börnum fyrir bestu
Þeir sem taka ákvarðanir í landinu eiga að gera það sem er börnum fyrir bestu, líka í neyðarástandi.

Áður en fullorðnir taka ákvarðanir eiga þeir að kanna hvaða áhrif þær geta haft á börn. Þeir eiga að hlusta á börn og tryggja að skoðanir þeirra geti haft áhrif.
Þeir eiga líka að kanna hvaða áhrif heimsfaraldurinn hafði á börn og hvað skiptir þau máli þegar neyðarástand verður.
Fullorðnir þurfa að muna að heimsfaraldur, sem stóð yfir í um tvö ár hefur enn áhrif á líf barna í dag.
​
Í Noregi og Svíþjóð þarf að kanna hvað sé börnum fyrir bestu þegar lög eða fjárlög eru undirbúin. Það þarf að gerast áður en tillögurnar eru lagðar fram. Umboðsmaður barna í Noregi hefur útbúið netnámskeið um hvernig þetta er gert.
Á Álandseyjum hittu þeir sem taka ákvarðanir í sveitarfélögum samtök sem vinna með börnum á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Svona samtöl ættu að fara fram oftar.
Á Íslandi spurði umboðsmaður barna börn hvað þeim fyndist um heimsfaraldurinn. Svörin voru tekin saman í skýrslu. Hún hjálpaði þeim sem taka ákvarðanir að skilja sjónarmið barna betur.

Sum börn þurfa meiri aðstoð

Sum börn geta lent í sérstökum erfiðleikum þegar neyðarástand verður, til dæmis börn í fjölskyldum með litlar tekjur og fötluð börn. Þessi börn eiga að fá meiri stuðning.

Fullorðnir verða að hlusta á börn

Skólar, sveitarfélög og stjórnvöld þurfa að hlusta á börn.
Það eiga að vera skýrar reglur um hvenær og hvernig eigi að spyrja börn hvað þeim finnst. Reglurnar eiga að tryggja að skoðanir barna séu teknar alvarlega. Þær eiga líka að gilda í neyðarástandi.
Sum börn þurfa stuðning til að segja hvað þeim finnst. Þau geta til dæmis verið mjög ung, fötluð eða talað annað tungumál.
Á Álandseyjum héldu samtök fund fyrir fötluð ungmenni. Þar ræddu þau reynslu sína af heimsfaraldrinum og önnur málefni. Í kjölfarið var gerð skýrsla um niðurstöðurnar.
Þeir sem taka ákvarðanir eiga síðan að segja börnunum hvaða ákvörðun var tekin og hvernig tekið var tillit til skoðana þeirra.
Löndin eiga að safna upplýsingum um hvernig börn taka þátt og deila þeirri þekkingu sín á milli. Börn eiga líka að geta komið skoðunum sínum á framfæri á netinu.
Í Finnlandi voru börn spurð á netinu hvernig þau hefðu upplifað skólann á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Fleiri en 58.000 börn svöruðu. Svör þeirra voru notuð þegar ný lög voru samin.
Umboðsmenn barna á Norðurlöndunum nota mismunandi leiðir til að hlusta á börn.
Í Finnlandi hittir umboðsmaður barna hópa barna sem kallast „Young Advisers“, eða ungir ráðgjafar. Umboðsmaður barna notar líka könnun sem kallast „Child Barometer“, eða barnamælir. Í könnuninni er hringt í mörg börn og þau spurð hvað þeim finnist um mál sem varða þau. Börnum hefur einnig verið boðið að teikna, mála eða skrifa um líf sitt á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir.
Í Svíþjóð áttu Sveriges Elevkårer, sem eru landssamtök sænskra nemendafélaga, vikulega fundi með þeim sem tóku ákvarðanir um menntamál.
Á Álandseyjum héldu þeir sem taka ákvarðanir hópfundi um mikilvæg mál á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Tveir fundir voru sérstaklega fyrir ungmenni.
Kennarar, félagsráðgjafar, læknar, lögregla og aðrir sem starfa með börnum eiga að fá fræðslu. Fræðslan á að fjalla um hvernig eigi að tala við börn og taka skoðanir þeirra alvarlega.
Í Danmörku útbjuggu heilbrigðisyfirvöld efni fyrir skóla og foreldra til að hjálpa þeim að ræða við börn um Covid-19.
Í Noregi hefur umboðsmaður barna útbúið netnámskeið fyrir fullorðna um hvernig eigi að tala við börn.
Ungmenni geta lagt mikið af mörkum, bæði í neyðarástandi og daglegu lífi. Þegar þau fá að taka þátt finna þau betur að þau geti haft áhrif.
Í neyðarástandi gætu ungmenni til dæmis tekið þátt í sjálfboðastarfi til að styðja önnur ungmenni, heimsótt eldra fólk eða sinnt öðrum verkefnum.

Börn þurfa upplýsingar

Til að geta myndað sér skoðun þurfa börn að vita hvað er að gerast. Upplýsingarnar þurfa að vera skýrar og einfaldar svo þau skilji þær.
Þegar neyðarástand verður eiga stjórnvöld að miðla upplýsingum beint til barna og fjölskyldna þeirra.
Upplýsingarnar þurfa að vera á stöðum þar sem börn sjá eða heyra þær, til dæmis á netinu, í öppum eða sjónvarpi. Þær þurfa einnig að vera aðgengilegar á mismunandi tungumálum.
Í Svíþjóð er vefsíða sem heitir Lilla Krisinfo. Þar fá börn upplýsingar um neyðarástand og önnur mál á máli sem þau skilja.
Í Danmörku er sjónvarpsstöð fyrir börn og ungmenni sem heitir DR Ultra. Stöðin gerði þætti þar sem börn gátu spurt sérfræðinga um Covid-19.

Skóli og heilsa

Skólar eiga að vera opnir ef það er mögulegt. Lönd eiga að geta boðið upp á fjarkennslu fyrir börn sem geta ekki mætt í skólann.
Börn eiga líka að geta fengið aðstoð skólahjúkrunarfræðings í neyðarástandi. Ef börn eru ekki í skólanum þarf skólinn að segja þeim hvernig þau geta haft samband við hjúkrunarfræðinginn.
Það sama á við um skólasálfræðinga og aðra sem geta veitt börnum aðstoð.
Þegar börn fara í sýnatöku eða bólusetningu eiga fullorðnir að huga að því hvað hentar börnum best.
Á Grænlandi var bætt við sérstakri símalínu um Covid-19 hjá hjálparsímanum Tusaannga.
Á Íslandi fóru börn í sýnatöku vegna Covid-19 á öðrum stað en fullorðnir. Þau voru ekki bólusett í skólanum þar sem litið var svo á að skólinn ætti að vera öruggur staður fyrir börn.

Frístundir

Frístundastarf barna á að halda áfram í neyðarástandi eftir því sem hægt er.
Ef stjórnvöld vilja loka eða takmarka frístundastarf barna eiga þau fyrst að ræða við samtök og aðra sem starfa með börnum.
Ef samt þarf að loka frístundastarfi eða takmarka það eiga stjórnvöld að segja börnum hvernig þau geti samt gert skemmtilega hluti með vinum sínum.

Börn eiga að geta kvartað

Öll börn eiga að geta kvartað við þá sem taka ákvarðanir. Börn þurfa að vita að þau megi kvarta og fá skýrar upplýsingar um hvernig þau eiga að fara að því. Enginn annar þarf að vita að barn hafi kvartað.

Norðurlöndin þurfa að hjálpast að

Fólk getur ferðast nokkuð auðveldlega á milli Norðurlandanna og stjórnvöld landanna hittast reglulega. Norðurlöndin vinna nú þegar saman á mörgum sviðum.
Fólk sem vinnur að réttindum barna í Danmörku, Finnlandi, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð og á Álandseyjum skrifaði þessa bók saman.
Á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir leitaði hvert land þó að mestu að eigin lausnum. Þegar eitt land fann góða leið til að gera eitthvað heyrðu hin löndin oft ekki af því fyrr en löngu síðar.
​

Norðurlöndin ættu saman að:

  • heita því að virða réttindi barna, líka þegar neyðarástand ríkir,
  • hittast og deila því sem virkaði vel, til dæmis góðum leiðum til að hlusta á börn,
  • koma sér saman um hvernig eigi að kanna hvaða áhrif ákvarðanir hafa á börn og kenna fullorðnum í öllum löndunum að gera það,
  • bera saman viðbragðsáætlanir landanna og gera sameiginlegar norrænar áætlanir,
  • tryggja að börn geti áfram farið yfir landamæri til að hitta foreldri, systkini eða aðra í nánustu fjölskyldu í öðru norrænu landi,
  • spyrja börn á öllum Norðurlöndunum sömu spurninga og bera svörin saman,
  • vinna saman að því að veita börnum upplýsingar sem þau skilja, hjálpa börnum sem líður illa og styðja fjölskyldur sem hafa lítið á milli handanna.
    ​
​
Norðurlöndin vilja vera sá hluti heimsins þar sem löndin vinna best saman. Börn eiga líka að njóta góðs af því, sérstaklega þegar erfiðleikar koma upp.
Ef þú þarft hjálp geturðu talað við einhvern fullorðinn sem þú treystir. Þú getur líka hringt í umboðsmann barna í síma 5528999 eða farið á vefsíðu embættisins barn.is. Ef þig vantar einhvern til að tala við geturðu hringt ókeypis í Hjálparsíma Rauða krossins í 1717. Hann er opinn allan sólarhringinn og þar er líka hægt að fá aðstoð í netspjalli.
Ef þú ert í hættu eða þarft hjálp strax skaltu hringja í 112.