Fara í innihald

1. Formáli

Þessi síða er fyrir fullorðna. Ef þú ert barn skaltu byrja á næstu síðu.

Þetta er barnvæn útgáfa skýrslunnar Participation is Protection – Embedding Children's Rights in Nordic Crisis Governance. Í skýrslunni er fjallað um hvernig réttur barna til að láta í ljós skoðanir sínar og hafa áhrif var tryggður á Norðurlöndunum á meðan Covid-19 heimsfaraldurinn stóð yfir. Helsta niðurstaðan var sú að börn voru að stórum hluta ekki höfð með í ráðum þegar teknar voru ákvarðanir sem höfðu mikil áhrif á líf þeirra. Þegar leitað var eftir skoðunum barna var það oft gert of seint til að þær gætu haft raunveruleg áhrif.
Ef skýrsla um þessa niðurstöðu væri aðeins gefin út á formi sem fullorðnir gætu lesið væri verið að endurtaka sömu mistökin og fjallað er um í skýrslunni. Þessi útgáfa er ætluð lesendum frá um tíu ára aldri og fullorðna fólkinu í kringum þá, m.a. í skólum, heilbrigðis- og félagsþjónustu og á þeim stöðum þar sem ákvarðanir um börn eru teknar.
Þetta er ekki samantekt. Sameiginlegi hlutinn útskýrir rétt barna til að láta í ljós skoðanir sínar og hafa áhrif, hvað ungmenni sjálf sögðu og hvaða breytingar við viljum að stjórnvöld geri. Embætti umboðsmanna barna í hverju landi hafa síðan skrifað sinn eigin kafla, á sínu tungumáli, um það sem gerðist þar á tímum Covid-19.
Textanum er ætlað að vera lesinn af börnum, ekki aðeins að fjalla um þau.