Það á að hlusta á börn
Næstum öll lönd heims hafa samþykkt alþjóðlegan samning um réttindi barna. Hann heitir Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna. Þar segir m.a. að þú eigir rétt á að segja hvað þér finnst um allt sem hefur áhrif á þig og að fullorðnir eigi að taka það sem þú segir alvarlega. Það er ekki nóg að hlusta. Það þarf að taka skoðanir þínar alvarlega. Næsti kafli fjallar um þennan rétt og hvað hann þýðir fyrir fullorðna.
Til þess að þessi réttur hafi raunverulega þýðingu þurfa fjögur atriði að vera til staðar:
Það þarf að vera umhverfi þar sem þú getur sagt hvað þér finnst.
Þú þarft að geta tjáð þig á þann hátt sem hentar þér.
Sá sem tekur ákvörðun þarf að hlusta.
Það sem þú segir á að geta haft áhrif.
Síðasta atriðið er það sem fullorðnir gleyma stundum. Ef þú ert spurð eða spurður eftir að ákvörðunin hefur þegar verið tekin er ekki raunverulega verið að hlusta á þig. Sama á við ef sá sem spyr þig getur engu breytt. Hvort tveggja gerðist oft á meðan Covid-19 stóð yfir.
Þegar hlustað er á börn verða breytingar
Það getur raunverulega breytt einhverju þegar hlustað er á börn. Það gerist ekki alltaf, en við höfum þegar séð dæmi um það á Norðurlöndunum.
Í Finnlandi eiga þeir sem búa til ný lög að spyrja börn hvað þeim finnst þegar lögin hafa áhrif á þau.
Á Íslandi sagði umboðsmaður barna að breyta þyrfti því hvernig sýnataka barna færi fram. Eftir það fóru börn í sýnatöku á öðrum stað en fullorðnir, þurftu ekki að bíða jafn lengi og starfsfólk var sérstaklega valið til að taka á móti þeim.
Á Álandseyjum var mikið rætt um skólamáltíðir og hvernig fjarkennsla ætti að fara fram á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir. Árið 2021 var lögunum breytt svo reglurnar yrðu skýrari ef svipuð staða kæmi upp aftur.
Ungmenni tóku líka þátt í að skrifa þessa bók. Á fundi í Helsinki og á vinnustofu sögðu þau hvað þeim fyndist skipta mestu máli. Skoðanir þeirra höfðu áhrif á þær tillögur sem settar eru fram í bókinni. Þessar breytingar urðu ekki vegna þess að fullorðnir ákváðu skyndilega að gera betur. Þær urðu vegna þess að einhver sagði sína skoðun og einhver sem gat breytt hlutunum hlustaði.