Að spyrja er ekki það sama og að hlusta
Ungmennin sögðu að fullorðnir rugluðu þessu oft saman. Það er hægt að spyrja þig hvað þér finnst án þess að svarið þitt hafi nokkur áhrif.
Þau vildu að börn fengju alltaf skýr svör um hvort skoðanir þeirra hefðu haft áhrif. Þá vissi hvert barn hvort hlustað hefði verið á það í alvöru.
Leiðir til að hlusta á börn þurfa að vera tilbúnar áður en eitthvað gerist
Ungmennin lögðu mikla áherslu á þetta. Það er ekki hægt að finna upp nýja leið til að hlusta á börn þegar neyðarástand er þegar hafið. Leiðin þarf að vera til og vera notuð svo hún virki líka þegar eitthvað alvarlegt gerist
Ungmennateymi í neyðarástandi
Ungmennin komu með hugmynd að sérstöku viðbragðsteymi ungmenna. Hópurinn tæki þátt þegar eitthvað alvarlegt gerðist og fengi raunveruleg verkefni, en ekki bara tækifæri til að segja skoðun sína.
Teymið gæti til dæmis starfað innan skóla, svipað og nemendaráð. Ungmennin töldu að slík teymi ættu að vera víða, í sveitarfélögum, á landsvísu og á milli landa.
Sum vildu ganga lengra og hafa tvö teymi sem ynnu saman, annað skipað ungmennum og hitt fullorðnum. Þannig væru sjónarmið ungmennanna sjálfstæð og skýr en yrðu ekki bara hluti af ákvörðunum fullorðinna.
Ungmennin sem enginn heyrir í
Ungmennin bentu líka á að oft væru sömu ungmennin spurð, þau sem væru þegar virk og tækju þátt.
Eitt ungmenni á fundi getur þurft að tala fyrir hönd þúsunda barna og ungmenna sem hafa aldrei verið spurð hvað þeim finnst.
Ungmennin töldu að þau gætu oft sjálf náð best til barna og ungmenna sem fá sjaldan að taka þátt. Það getur verið auðveldara að svara jafnaldra en fullorðinni manneskju.
Ungmennin vilja fá að taka þátt
Ungmennin vildu ekki bara fá þakkir fyrir skoðanir sínar. Þau vildu að fullorðnir sæju að þau hefðu eitthvað mikilvægt fram að færa.
Þau vildu fá að vera með frá upphafi og alltaf þegar mikilvægar ákvarðanir væru teknar. Þau vildu líka geta tekið þátt í alvöru en ekki bara fá loforð um að á þau yrði hlustað.