Réttur þinn til að láta í ljós skoðanir þínar tengist öðrum réttindum þínum
Í Barnasáttmálanum eru fjórar mikilvægar meginreglur:
2. gr. – Öll börn eiga sömu réttindi, óháð því hver þau eru eða hvaðan þau koma.
3. gr. – Fullorðnir eiga að gera það sem er barni fyrir bestu.
6. gr. – Öll börn eiga rétt á að lifa, vaxa og þroskast.
12. gr. – Öll börn eiga rétt á að hlustað sé á þau.
Þessi réttindi tengjast hvert öðru. Fullorðnir geta til dæmis ekki vitað hvað er þér fyrir bestu nema þeir hlusti á þig. Þess vegna er réttur til að hafa áhrif svo mikilvægur hluti af réttindum barna.