Go to content
Íslen­sk

Nor­ræn skil­grein­ing á dauf­blindu - samþæt­tri sjón- og heyrnarskerðin­gu

Dauf­blin­da kallast það þe­gar samþætt sjón- og heyrnarskerðing er til staðar í þeim mæli að hún gerir sker­tu skyn­færunum er­fitt fyrir að bæta upp fyrir hvort an­nað. Þess veg­na er samþætt sjón- og heyrnarskerðing sértæk fötlun.

Hel­stu áhrif

  • Samþætt sjón- og heyrnarskerðing tak­markar, í mis­mik­lum mæli, virkni og ke­mur í veg fyrir ful­la sam­félagsþátt­töku.
  • Samþætt sjón- og heyrnarskerðing he­fur áhrif á sam­skip­ti, að­gen­gi að up­plýsingum, át­tun og örug­gt um­fer­li.
  • Sner­tiskyn­færin verða mik­il­væ­gari til að bæta upp fyrir samþæt­tu sjón- og heyrnarskerðin­gu­na.
  • Fólk með samþæt­ta sjón- og heyrnarskerðin­gu er í aukin­ni áhæt­tu á að up­pli­fa áhrif fötlu­nar á líkam­le­gri og an­dle­gri heil­su sem og félagslegum áhri­fum. 

Samþætt sjón- og heyrnarskerðing

Al­var­lei­ki samþæt­trar sjón- og heyrnarskerðin­gar tekur mið af:
  • Hvenær á líf­sleiðin­ni skerðin­gin byr­jar að hafa áhrif m.t.t. málþros­ka og sam­skip­ta
  • Hver­su mik­il sjón- og heyrnarskerðin­gin er.
  • Hvort skynskerðin­gin tengist öðrum skerðingum.
  • Hvort skerðin­gin sé stöðug eða ágerist.

Sértæk fötlun

Þe­gar sker­tu skyn­færin eiga er­fitt með að bæta upp fyrir hvort an­nað he­fur það í för með sér að:
  • Tilrau­nir til að nota skert skyn­færi til að bæta upp fyrir an­nað taka lan­gan tíma, mik­la orku og þar af verður skyn­junin sun­durleit.
  • Þe­gar virkni sjó­nar og heyrnar minnkar eykst þörfin fyrir að nota aðra skyn­jun (t.d. hap­tís­ka, sner­tiskyn, hrey­fiskyn­jun, stöðuskyn á ei­gin líka­ma, bragð og lykt).
  • Það tak­markar að­gen­gi að up­plýsingum úr fjar­lægð.
  • Þörf til að reiða sig á up­plýsin­gar frá nærumhver­fi eykst
  • Skil­ningur á up­plýsingum þarf að byg­g­jast á min­ni og ályk­tanir eru dreg­nar af slitrót­tum up­plýsingum.

Virkni og þátt­ta­ka

Samþætt sjón- og heyrnarskerðing tak­markar athafnir ein­stak­lingsins og ke­mur í veg fyrir ful­la þátt­töku hans í sam­félag­inu. Samkvæmt Samnin­gi Samein­uðu þjóðan­na um rét­tin­di fat­laðs fólks (UN­CR­PD) er þátt­ta­ka sjálfgefinn rét­tur all­ra man­na. Til þess að gera ein­stak­lingnum kleift að nota getu sína og úr­ræði þarf sam­félag­ið að auðvel­da það með sérsniðin­ni þjónus­tu:
  • Ein­stak­lin­gurinn og umhver­fi hans eiga að taka jaf­nan þátt, en ábyrgðin á að­gen­gi að virkni er í hön­dum sam­félagsins. Að­gengi­legt sam­félag ætti að lág­mar­ki að in­ni­hal­da:
    • Að­gengi­le­gan og hæ­fan sam­skiptaféla­ga.
    • Að­gengi­le­ga sérhæfða túlkun, þar með tal­ið taltúlkun, umhver­fis­lýsin­gar og leiðsögn.
    • Að­gen­gi að up­plýsingum fyrir alla.
    • Per­sónule­ga aðs­toð til að auðvel­da da­glegt líf.
    • Aðla­gað umhver­fi.
    • Að­gengi­le­ga tækni og tækni­leg hjál­partæ­ki.
  • Ein­stak­lin­gur með samþæt­ta sjón- og heyrnarskerðin­gu getur búið við meiri fötlun við eina athöfn en min­ni við aðra. Mis­mu­nan­di virkni getur ver­ið afleiðing af bæði umhver­fisþát­tum og per­sónulegum þát­tum.
  • Sérhæfð þekking um samþæt­ta sjón- og heyrnarskerðin­gu ásamt þverfa­gle­gri nál­gun er nauðsyn­leg fyrir rét­ta þjónus­tu.