Helstu áhrif
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing takmarkar, í mismiklum mæli, virkni og kemur í veg fyrir fulla samfélagsþátttöku.
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing hefur áhrif á samskipti, aðgengi að upplýsingum, áttun og öruggt umferli.
Snertiskynfærin verða mikilvægari til að bæta upp fyrir samþættu sjón- og heyrnarskerðinguna.
Fólk með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er í aukinni áhættu á að upplifa áhrif fötlunar á líkamlegri og andlegri heilsu sem og félagslegum áhrifum.
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing
Alvarleiki samþættrar sjón- og heyrnarskerðingar tekur mið af:
Sértæk fötlun
Þegar skertu skynfærin eiga erfitt með að bæta upp fyrir hvort annað hefur það í för með sér að:
Þegar virkni sjónar og heyrnar minnkar eykst þörfin fyrir að nota aðra skynjun (t.d. haptíska, snertiskyn, hreyfiskynjun, stöðuskyn á eigin líkama, bragð og lykt).
Það takmarkar aðgengi að upplýsingum úr fjarlægð.
Virkni og þátttaka
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing takmarkar athafnir einstaklingsins og kemur í veg fyrir fulla þátttöku hans í samfélaginu. Samkvæmt Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (UNCRPD) er þátttaka sjálfgefinn réttur allra manna. Til þess að gera einstaklingnum kleift að nota getu sína og úrræði þarf samfélagið að auðvelda það með sérsniðinni þjónustu:
Einstaklingurinn og umhverfi hans eiga að taka jafnan þátt, en ábyrgðin á aðgengi að virkni er í höndum samfélagsins. Aðgengilegt samfélag ætti að lágmarki að innihalda:
Aðgengilegan og hæfan samskiptafélaga.
Aðgengilega sérhæfða túlkun, þar með talið taltúlkun, umhverfislýsingar og leiðsögn.
Aðgengi að upplýsingum fyrir alla.
Persónulega aðstoð til að auðvelda daglegt líf.
Aðlagað umhverfi.
Aðgengilega tækni og tæknileg hjálpartæki.
Einstaklingur með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu getur búið við meiri fötlun við eina athöfn en minni við aðra. Mismunandi virkni getur verið afleiðing af bæði umhverfisþáttum og persónulegum þáttum.
Sérhæfð þekking um samþætta sjón- og heyrnarskerðingu ásamt þverfaglegri nálgun er nauðsynleg fyrir rétta þjónustu.